Að gefa egg

Getir þú hugsað þér að gefa egg? Þá bendum við þér á heimasíðu eggjabanka Livio, þar sem þú finnur allar upplýsingar um eggjagjöf.

Til að geta orðið eggjagjafi þarft þú að:

  • Vera við góða heilsu og ekki hafa þekkta arfgenga sjúkdóma í fjölskyldunni
  • Vera á aldrinum 23 til 35 ára
  • Æskilegt er að þú hafir eignast barn, en það er ekki skilyrði
  • Vera með líkamsþyngdarstuðul (BMI) undir 32
  • Vera reyklaus